21.09.2008 15:30:48 / svavaogkrusi
Life is like the waves it has its ups and downs
Life is like a roller coaster it has its twists and turns
Life is like a sport it just depends on what we play
Life is like a game of poker it just depends on what we are dealt
Life can be given life can be taken
Life can be a curse life can be a blessing
Life can be a pain life can be insane
Life has its ways life has its days
Life has its love life has its hate
Life has its gentler touch but it has its harder punch
Life brings you your knees when you feel in need
Life brings you a lot of things
but in the end it depends on what we do
»
05.09.2008 15:23:44 / svavaogkrusi
Hæhæ elskurnar ég hef ákveðið að taka mér smá hlé frá bloggi þangað til eitthvað sérstakt eða merkilegt gerist hehe.. ég hef ekki lengur tíma sorry beibís. En við höfum það annars bara gott. Ef það er eitthvað spes þá er emailið mitt zvava_@hotmail.com.
Takk fyrir allt kv. Svava og Óskar Bjarmi
»
06.08.2008 16:06:57 / svavaogkrusi
Hæhæ elskurnar mínar ÞJóðHÁTÍÐIN var yndisleg eins og alltaf og skemmti ég mér svo vel.. alltaf jafn skotin í Eyjum:*:*LOVE IT LOVE IT LOVE IT
Núna erum við bara að gera okkur til fyrir Köben á morgun og hlakka svo til.. tívolí.. versla chill ohhh þetta verður snilld.
Elska ykkur takk endalaust.
»
29.07.2008 13:19:15 / svavaogkrusi
Hæhæ allir takk fyrir að kjósa og lesa og hugsa til okkar:* Þótt ég segi sjálf frá þá finnst mér við bara spjara okkur vel
Erum búin að bralla við ýmislegt í sumar og hafa það ljúft. Óskar Bjarmi snillingurinn minn er búin að vera í íþróttaskólanum frá 9-12 og svo beint á sundæfingu á hverjum degi í sumar. Erum búin að vera svo á ýmsu flakki og ferðalagi um helgar. Framundan er mikið að gerast.. í næstu viku þegar ég kem frá eyjum ætlum við að fljúga til Danmerkur og skemmta okkur í tívolíinu, dýragarðinum og njóta lífsins saman.
»
14.07.2008 16:31:36 / svavaogkrusi
»
19.06.2008 10:30:45 / svavaogkrusi
Hæ hæ elskur loksins kem ég með nýtt blogg.. hef bara ekki vitað um hvað ég ætti að skrifa hehe
Það er samt eitthvað búið að gerast síðan síðast. Ég er bara að reyna njóta sumarsins. Rækta sjálfan mig og Óskarinn minn. Æjj vá þetta líf. Svo ótrúlegt fyrirbæri. Maður getur ekkert annað en brosað og haldið áfram þessu lífi þegar maður fær svona frábæra vöknun eins og í morgun.. hann Óskar Bjarmi mister Krúsi Junior.. sagði við mig .."mamma þú ert sko hetja" og kyssir mann svo
Já stundum getur lífið verið yndislegt.
Við erum buin vera dugleg að vera úti í sólinni þá daga sem gott er veður.. fórum í útileigu síðustu helgi með tengdó og Sæma, Önnu og gröllurunum þeirra. Það var yndislegt að komast úr borginni og í sveitina. Veðrið skemmdi ekki fyrir. Ég þarf nú soldið að hafa fyrir því að fá lit.. og brenn stundum en Óskar Bjarmi töffari er svo heppinn að verða bara alltaf brúnn!
Það kemur stundum fyrir að maður er ómögulegur suma daga og fellir tár. Þá kemur bjargvætturinn minn og segir við mann.. "brosa mamma" "ég sakna líka pabba rosa mikið.. pabbi vill að við séum sterk"
Það er svo yndislegt hvað hann Óskar Bjarmi er sterkur persónuleiki og ekki orðinn 5ára. Krúsi hefur skilið eftir svo stórann hlut af sér.. ég sé ávallt meira og meira af Krúsa í Óskari Bjarma á hverjum degi. Ég get ekki annað en bara brosað
.. sumir hefðu viljað að við myndum spjara okkur. Ekki satt?
Nú fer sumarfríið að byrja hjá okkur.. og Óskar er fullbókaður hehe.. hann ætlar á íþróttanámskeið og halda áfram í sundinu. Hann er algjör snillingur. Plús er hann líka byrjaður að feta sig í golfinu. Ég keypti Tiger woods alvoru barnagolfsett og ég er ekki að djóka hann er farinn að gera fólk agndofa á golfvellinum.. sjá sveifluna marr.. hann hefur þetta í blóðinu. Svo heillar fótboltinn hann líka. Ég veit ekki hvað hann getur ekki. Undrabarn hér á ferðinni hehehehe!
´Svo ætlum við að skreppa til Köben í ágúst og leika okkur í tívolíinu dýragörðum og rennibrautum..
Takk fyrir að lesa og kikja á síðuna okkar.. gott að vita að fólk hugsar til okkar
ef það er eitthvað þá bara spurja ekki hika við það.. knús ogkossar
»
25.05.2008 23:21:42 / svavaogkrusi
Hæ hæ ég útskrifaðist sem IAK einkaþjálfari í gær og ég er voða sátt með sjálfan mig. Mér finnst þetta samt sem áður svo ótrúlegt þvi mer finnst eins og það sé svo stutt síðan ég sótti um í skólann og byrjaði að druslast til keflavíkur. Æjj þessi tími er búin að vera æðislegur.. ein af mínum bestu hugmyndum að stökkva í djúpu laugina og byrja í skólanum,, svo þakklát sjálfri mér að hafa lagt í þetta og að mér hafi tekist að klára.. allveg hreint frábært!
Á föstudagskveldið héldum við Linda syss tvöfalt útskriftaparty þar sem hún var líka að fagna sínum frábæra áfanga að verða stúdent
Það var bara frábært allir allveg hreint æðislegir og gjafirnar sem við fengum ómetanlegar og meira en við bjuggumst við. Laugardagurinn þá útskrifaðist ég ..bara frábært.. um kvoldið fórum við familíen út að borða í tilefni helgarinnar.. og svo júróvísion party:=)
Búin að vera frábær helgi. Rosa ánægð og þakklát fyrir allt.
Nú bíður mín sumarið.
Á svona stórum tímum saknar maður Krúsa.
»
13.05.2008 21:29:54 / svavaogkrusi
Hæ elskurnar mér líður rosa vel þessa dagana því ég er loks buin með prófin lokaritgerðina og fyrirlesturinn. Þetta er bara búið.. ég er að fara útskrifast eftir 10 daga ohh á laugardaginn þá flutti ég síðasta verkefnið mitt.. og ég var orðinn svo nett stressuð en svo tókst þetta svona bara fínt. Tilfinningin þegar þetta var búið .. vá mér langaði að öskra af gleði. En röddin inní mér æpti MÉR TÓKST ÞETTA! Svo um helgina voru Hænararnir(heineken) keyptir og drukknir með nautn og gleði. Yndislegt að komast á djammið eftir alla þessa törn.. fór á skrallið með elskunum mínum Þóru minni og Robba mínum þessar elskur eru bara best í heimi getekki ímyndað mér lífið án þeirra my bestest friends..takk elskurnar mínar fyrir allt:* Svo næstu helgi þá erum við í skólanum að fara skemmta okkur saman
Og helgina eftir það er útskriftin.. kampavín með meiru
--Óskari Bjarma gengur vel komst á framhaldnámskeið í sundi 4og hálfsárs toffarinn komst í hóp 5-6ára og er mega stoltur af því að vera komin í stórahóp..hann er svo duglegur.. svo verður annað námskeið í sumar og svo aftur í haust þannig að Óskarinn er mættur til að vera!
Við erum frekar glöð þessa dagana sem er bara frábært
»
28.04.2008 22:53:16 / svavaogkrusi
Í dag er stórmerkilegur dagur skal ég segja ykkur og í staðinn fyrir að vera leið sem er bara ekki rétt.. þá fagna ég. Hann elsku Krúsi minn hefði orðinn 25 ára í dag ef hann væri meðal okkar í dag. Ef ég þekki kjellinn minn rétt þá er eitt heljarins partý þarna hinumegin akkurat núna ohh það er party´sem ég hefði viljað vera boðin í shittt! Vona svo innilega að hann njóti dagsins í botn.
En í annað törnin hjá mér hefur ekkert minnkað síðan síðast.. ég er enn í prófum og er að gera lokahönd á lokarigerðina mína akkurat í þessum töluðum orðum. Get ekki beðið eftir því að útskrifast þann 24.maí n.k. Og smá fréttir hérna með þessu.. eins og flestir sem ég þekki þá er ég að hætta í vinnunni minni núna 30. eftir nærri 3ára starf á sama stað og þá ætla ég að taka mér smá hlé áður en ég legg aftur af stað eftir útskrift. Þá hef ég tíma í sumar til að rækta sjálfan mig uppá nýtt. Þetta er búið að vera alltof harður vetur og ótrúlegt að ég skuli enn standa upprétt. Ég tel mig vera óendalega heppin að eiga svona frábært fólk í kringum mig ég á því það að þakka að ég er ekki á Kleppi. Grínlaust.
Hann Óskar Bjarmi, engillinn minn, töffari og snillingur með meiru líkist pabba sínum svo og taktarnir leyna sér ekki. Að hann sé mér ALLT er miklu meira en að segja það.
Hann er að ljúka sundnámskeiðinu sínu á morgun og framfarir hjá honum djí.. engir kútar. Ég fer með hann á fótboltavöllinn á hverju kvöldi og allar helgar.Íþróttaskólinn kláraðist líka um helgina og nú blasir sumarið við. Er að vona að hann komist inn á sumarnámskeið. .
takk fyrir allt ég skrifa meira seinna kveðja VIÐ
»
15.04.2008 15:46:59 / svavaogkrusi
Hæ elskurnar mínar ég er svo útkeyrð .. það er búið að vera brjálað gera hjá mér.. próf og aftur próf.. og ég alltof ströng við sjálfan mig.. líkaminn bara segir "úff!" En svona verður þetta að vera þangað til ég útskrifast elskurnar mínar.. mín örlög voru að berjast á móti risaöldum lífsins og ekkert sem ég get breytt við því. Verð stundum þreytt á því að vera drukkna en ég verð að vera nógu sterk til synda.
Ljósið mitt Óskar Bjarma elska ég meira en allt í heiminum.. finnst stundum erfitt þegar það er svona mikið að gera að ég fái ekki nóg tíma með honum.. en hann skilur þetta allt hann er svo mikill snillingur þessi elska.
Hef verið tilfinningarík undanfarið.. það er bara svo stór tilfinningardagur á morgun 16.apríl.. skrítið að það skuli vera komið ár síðan.. ég passaði uppá að sigurósin sé komin í hús.
Helgin síðasta sýndi mér hversu ótrúlega þakklát ég er fólkinu mínu.
»
30.03.2008 01:19:59 / svavaogkrusi
Það er að koma apríl. Einstaklega þýðingarmikill mánuður. Ótrúlegt hvað þetta blessaða líf er fljótt að líða. Það er meira en að segja það. 9 mánuðir liðnir og ég stend á báðum fótum. Ég get allveg viðurkennt það fyrir sjálfum mér að það sé nú bara ótrúlegt. Fyrir 9mánuðum síðan hélt ég að ég myndi ekki lifa út síðasta sumar. En einhvernveginn á skringilegan hátt þá ósjálfrátt er maður fæddur til að þrauka og finna sér undankomuleiðir í lífinu.
Ég og Óskar Bjarmi ástin mín höfum það bara þokkalegt. Áttum yndislegt páskafrí. Við förum reglulega upp á leiði. Engillinn talar um pabba sinn á hverjum degi. Óskar Bjarmi er svo yndislegur.
Nú er áframhaldandi "rösh" að nálgast í skólanum.
Takk allir kv. VIÐ
»
21.03.2008 17:17:31 / svavaogkrusi
Jæja þá er maður hér í páskafríi.. ekkert nema fermingaveislur, kaffi og matarboð hér og þar.. úff kolvetnin hlaðast upp og gymmið lokað. Ég hef þá lagt á það ráð að fara með Óskar Bjarma niðrá fótboltavöll og sund. Og taka nokkur sett af armbeygjum þegar ég get
Sem heldur manni í formi á meðan hehe
Svona eru bara páskafríin mjög lík jólafríum úfff!... svo bíður manns ljúfenga páskaeggið á sunnudaginn sem varla er hægt að standast. Splæsir bara svoleis á mann einu sinni á ári og þá er bannað að fá samviskubit. Já vitiði stundum er bara gott fyrir sálina að fá smá extra kolvetnahleðslu, þar sem maður er alltof strangur við sjálfan sig á venjulegum dögum. Ég og Óskar Bjarmi erum bara búin að hafa það ljúft það sem komið er af þessu yndislega fríi.
Annars er voða lítið nýtt að frétta. Lífið heldur ótrautt áfram. Við brosum bara
annars brosir lífið ekki við okkur.
»
13.03.2008 22:00:29 / svavaogkrusi
Mikið rosalega er maður latur að blogga.. ég get æft eins og brjálæðingur dag eftir dag en nenni ekki að setjast niður og blogga hehe ofvirk ekki satt? stundum verður maður að reyna slaka á.. skreppa í ljós eð'a eitthvað.. þarf sem ropeyogað kláraðist í byrjun mars.. þarf maður að finna eitthvað annað til að stoppa sig aðeins af.
Ég fór í fyrsta lokaprófið mitt í vikunni og var búin að læra fram á nótt frá fimmtudag í síðustu viku og sofa lítið. Lærði lærði lærði og lærði og æfði æfði æfði og æfði.. gerði algjorlega út af við mig. Svo þegar ég mætti í prófið svo þreytt og slöpp gerði ég mitt allra allra besta. En díses hvað þetta var erfitt próf úfff.. við skulum vona að ég hafi tekið þetta. Núna er að koma páskafrí og smá hlé í næsta próf.
Óskar Bjarmi er svo klár og duglegur. Alltaf jafn stolt af honum.
Ég stend á krossgötum og hef mikið verið að pæla í lífinu. Ætla bara berast með straumum lífsins.
Ég sakna Krúsa.
»
29.02.2008 21:39:15 / svavaogkrusi
Takk fyrir mig elskurnar mínar gellan orðin 24 ára og rosalega sátt með það og hvað allir standa við bakið á mér og eru ótrúlega elskuleg við mig alltaf
(koss)elska ykkur:-)
»
24.02.2008 23:29:09 / svavaogkrusi
Fékk óvænta konudagsgjof frá krúsa ídag...já ég segi satt.. ég var að kramsa í dag og fann gamla upptoku af góðum tímum sem hafði gleymst í draslinu.. ég horfði á það leið rosa vel og hló
Ég trúi því að ég hafi átt að finna hana í dag.. krúsi minn ó takk. Þótt upptakan hafi verið stutt þá er hún mér ómetanleg. Hann var og verður alltaf snillingur að láta mér líða betur. Hann meira segja getur það þótt hann sé hinumegin.
Nú á ég afmæli á miðvikudaginn going to be 24 hehe
.. já tíminn líður vá hugsa ég stundum. Svo næstu helgi verður tekið á því vuhú! Það hlakkar í djammpúkanum núna
Það er annars bara það sama hér.. eða nei bíddu.. ég hef verið svoldið mikið að hugsa undanfarið ekki þá bara venjulegt hugs heldur framtíðarhugs um humm aha.
Pælið í lífinu elskurnar
ekkert er sjálfgefið
»
Síður:
1 2 3 ...
5